Esmeralda Santiago er frá Púertó Ríkó og er nýflutt til New York. Líf hennar utan veggja heimilisins er kærkomin hvíld frá baslinu í tveggja herbergja íbúð í Brooklyn, kröfuharðri móður og ört stækkandi systkinahópi. Töfrar og tækifæri borgarinnar heilla og Esmeröldu dreymir um að gera nokkuð sem enginn í fjölskyldu hennar hefur gert áður - að mennta sig. Hún fær inngöngu í virtan sviðslistaskóla á Manhattan, leikur Kleópötru í leiksýningum, dansar salsa um nætur og eygir von um annað líf, frægð og frama. Esmeralda aðlagast nýju umhverfi fljótt en krafan um að hún sé trú uppruna sínum er sterk og togstreitan eykst. Hún berst fyrir sjálfstæði sínu og að losna undan verndarvæng móður sinnar sem sér hættur á hverju götuhorni og í augnatilliti hvers karlmanns.
Bókin er sjálfstætt framhald Stúlkunnar frá Púertó Ríkó sem kom út 2014. Hér heldur höfundur áfram að segja þroskasögu sína og lýsa uppvexti sínum á magnaðan og seiðandi hátt.
Esmeralda Santiago deilir með okkur minningum sínum sem veita einstaka innsýn í líf ungrar konu í New York sjöunda áratugarins. Leiftrandi frásagnargáfa Esmeröldu heldur lesandanum hugföngnum. Ljóslifandi minningabók sem erfitt er að leggja frá sér og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda.
Við kynnum með stolti nýjan og yndislegan aðventuviðburð í bókabúð Sölku við Hverfisgötu! Á lifandi laugardögum geta bókaormar og stuðpinnar á öllum aldri fundið eitthvað við sitt hæfi.

Verið hjartanlega velkomin á bókakvöld í bókabúð Sölku miðvikudaginn 26. nóvember kl. 20! Þar leiða saman hesta sína tvær skáldkonur sem báðar eru með sögulegar skáldsögur í jólabókaflóðinu, þær Sigríður...

Stuðskvísurnar Kamilla Einars og Rakel Garðars boða til bókabarsvars í bókabúð Sölku miðvikudaginn 19. nóvember kl. 18. Þær lofa góðri skemmtun og svakalegum tilboðum á barnum. Vinningar fyrir sigurliðið og...

Verið velkomin á tarot-kvöld Sölku þar sem nornin Íris Ann Sigurðardóttir kennir grunnatriði tarot-lesturs, hvernig leggja skal spilin og lesa úr þeim. Fullt er á námskeiðið 5. október og hefur...

Verið hjartanlega velkomin að fagna útgáfu bókarinnar Næturskrímslin eftir Pétur Arnórsson og Þórhildi Sunnu Jóhannsdóttur með okkur í bókabúð Sölku, Hverfisgötu 89, laugardaginn 3. október kl. 14! Boðið verður upp...

Verið hjartanlega velkomin að fagna útgáfu bókarinnar Matthildur Mía fer í Hagann eftir Diljá Hvannberg Gagu og Linn Janssen í bókabúð Sölku, Hverfigötu 89, sunnudaginn 4. október kl. 14! Boðið...