Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Hannyrðir, húslestur og happy með Júlíu Margréti
Það er tekið að hausta og huggulegheitin færast yfir í bókabúð Sölku. Taktu með þér það sem þú ert með á prjónunum eða heklnálinni, skissubókina eða útsauminn og nældu þér í drykk á happy hour-verði, njóttu þess að láta höfunda lesa upp fyrir þig úr bókum sínum og hittu aðra til að ræða bækur og hannyrðir. Viðburðurinn verður miðvikudaginn 22. október kl.17:30. 
Hússkáldið að þessu sinni er hin frábæra Júlía Margrét Einarsdóttir sem nýverið gaf út skáldsöguna Dúkkuverksmiðjan.
Við hlökkum til að sjá ykkur sem flest og eiga notalega stund með ykkur.
20. október 2025 eftir Dögg Hjaltalín