Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Útivera - bók fyrir allar fjölskyldur

Við fögnum útgáfu Útiveru eftir Sabínu Steinunni Halldórsdóttur í Grasagarðinum sunnudaginn 3. nóvember kl. 14. Kakó, kleinur, leikir og allir velkomnir!

Útivera hefur að geyma 52 spennandi hugmyndir til að fjölga gæðastundum fjölskyldunnar úti í náttúrunni á öllum árstímum. Ævintýrin gerast nefnilega hvenær og hvar sem er. Hamingjan er fólgin í því að vera í núinu og njóta staðar og stundar.

Útivist með börnum snýst um samveru og að skapa minningar. Að auki hefur leikur og lærdómur í náttúrunni jákvæð áhrif á allan þroska barna og forspárgildi um lífsgæði og heilsu á efri árum.

Útivera er allskonar og náttúran er allskonar, iðandi af lífi og næringu. Náttúran okkar er alltaf opin öllum sem vilja sækja hana heim.

Sabína Steinunn Halldórsdóttir hefur sérhæft sig í hreyfifærni barna með áherslu á útivist í námi og starfi. Hún hefur haldið fjölda námskeiða og skrifað kennslubækur um efnið sem er henni afar hugleikið.

31. október 2019 eftir Anna Lea Friðriksdóttir