Skemmtilegar bækur fyrir skemmtilegt fólk
Grænkerakrásir Guðrúnar Sóleyjar valin besta veganbók í heimi

Matreiðslubók fjölmiðlakonunnar Guðrúnar Sóleyjar Gestsdóttur, Grænkerakrásir, hlaut á dögunum hin alþjóðlegu Gourmand-matreiðslubókaverðlaun í tveimur flokkum. Annars vegar í flokki veganbóka þar sem hún hreppti fyrsta sætið og hins vegar í flokki skandínavískra bóka þar sem hún hafnaði í þriðja sæti. Bækur frá fleiri en 200 löndum og landsvæðum keppast um verðlaunin árlega og samkeppnin er hörð. Gourmand-verðlaunin hafa verið veitt frá árinu 1995. 

Grænkerakrásir komu út fyrir jólin 2018 og bókin hefur fengið mikið lof. Guðrún Sóley hefur alla tíð verið matargat og sælkeri sem veit fátt betra en að borða góðan mat, helst með mikilli sósu, í góðum félagsskap. Fyrir nokkrum árum ákvað hún að stíga skrefið til fulls og verða alfarið vegan. Þá hófst nýr kafli sem sneri að því að fóta sig með ný hráefni og nýjar forsendur í matargerð. 

„Sá kafli stendur enn yfir og er eitt skemmtilegasta verkefni sem ég hef tekist á við“ segir Guðrún Sóley og bætir við: „Heill heimur opnaðist fyrir mér og ég trúði varla möguleikunum sem öll þessi hráefni bjóða upp á; kryddin, ferska grænmetið, baunirnar, ávextirnir, jurtirnar, hneturnar, fræin. Pastað! Pizzurnar! Hamborgararnir! Kökurnar, kruðeríið og sælgætið. Og sósurnar – maður lifandi, sósurnar!“

Veganismi er ekki tiltekið mataræði, hann er ekki meinlætastefna og allra síst megrun. Hann er hugmyndafræði sem miðar að því að binda endi á kerfisbundið ofbeldi gegn dýrum, taka skilvirk og risastór skref í átt að umhverfisvernd og tryggja okkur hreysti, vellíðan og hamingju.

„Hver einasta máltíð sem ég borða er litrík, bragðmikil og stútfull af vítamínum og góðri næringu. Ég neita að borða leiðinlegan mat, til þess er lífið of stutt.“ segir Guðrún Sóley og hlær. 

„Þess vegna einsetti ég mér að setja saman uppskriftir sem eru VEGAN og fullar af fjöri, kryddi og djúsi. Þær ættu að gagnast öllum, hvort sem markmiðið er að borða örlítið meira grænt, prófa kjötlausan dag eða geta boðið veganistanum í fjölskyldunni upp á eitthvað gómsætt í matarboðum.“

Fallegu ljósmyndir bókarinnar tók Rut Sigurðardóttir og hönnun var í höndum hinnar hæfileikaríku Þorbjargar Helgu Ólafsdóttur hjá Farva. Afhending Gourmand-verðlaunanna átti að fara fram í París í júní en vegna aðstæðna varð ekkert af þeirri verðlaunaafhendingu og var því slegið í óformlega verðlaunaafhendingu á Vinnustofu Kjarvals á 17. júní. 

Myndatexti: Þorbjörg Helga Ólafsdóttir, Guðrún Sóley Gestsdóttir, Rut Sigurðardóttir.

19. júní 2020 eftir Dögg Hjaltalín